Bloggum til að gleyma
18.07.2006 23:58:03 / birgirm

Nýtt blogg

Framvegis mun ég blogga á

www.bigginn.bloggar.is

Kíkið!


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 01:03:15 / birgirm

Geisp

Ég er mikið að spá í að skríða upp í rúm. Geisp... Geisp... UUHHH.....                            Var duglegur að veiða í dag, fór í Hraunsá og Selslæk í fyrsta sinn í sumar, gleðjist gumar. Geisp.....

Geisp,,,,,,. Æi  Uhhhhh..... ég á ekki orð, þessir írsku dagar virðast nánast hafa gengið að mér dauðum. Bryggjudagar eftir 3 en þangað til: Sofa og e-ð. verið í bandi bara..

8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 22:48:22 / birgirm

Blússandi gangur

Hver á að passa mig í kvöld?                                                                                  Hver á að passa mig í kvöld?

Ekki taka af mér öll völd

Þó að þú passir mig í kvöld

Við tekur önnur öld

Í kvöld

Þúsundföld

Og köld...

Vá held ég verði að fara að leggja  dægurlagatextagerð fyrir mig. Þarna sé ég framtíð mína.

 En allavega þá eru þau gömlu farin til heitari landa og tóku litla gríslinginn á heimilinu með sér.  Það þýðir væntanlega bara eitt...

 En svona í lokin. Hvenær kemur sumar???? Og annað, djöfull er Eurotrip mikil steypa, reyndar best þegar Hasselhoff tekur lagið. hehe...!

 Og eitt enn: 8 dagar í Bryggjuhátíð, þannig að drífið ykkur að ljúka við lopapeysuna;)

Hér er svo dagskráin:

Bryggjuhátíðin á Stokkseyri hefst formlega föstudagskvöldið 14. júlí með varðeldi og bryggjusöng Árna Johnsen sem jafnfram opnar nýtt tónleikasvið sem byggt hefur verið til varanlegrar staðsetningar á Stokkseyrarbryggju.

Heiðrun verður fyrir björgunarafrek við strand Elíasar Steinssonar VE 167 frá Vestmannaeyjum austan Stokkseyrar 28. mars 1973 þegar allri áhöfn 9 manns var bjargað.
Bítlavinafélag Suðurlands flytur úrval Bítlalaga úr söngleiknum “Let it be” sem sýndur var á Stokkseyri í vetur við miklar vinsældir.
Flugumferð verður töluverð yfir Stokkseyrarhöfn og verður dreift sælgæti yfir gesti og Björn Thoroddsen mun sýna listflug.
Hljómsveitin Karma leikur síðan á Draugabarnum.

Á fimmtudagskvöldinu 13. júlí verða stórtónleikar fjölmargra hljómsveita á Draugabarnum og eru þessir tónleikar hluti Bryggjuhátíðarinnar.

Á laugardeginum 15. júlí og sunnudeginum 16. júlí verður fjölbreytt dagskrá og afþreying viða um Stokkseyri svo sem í Töfragarðinum þar sem mörg atriði verða, við Shellskálann, í Menningarkaffi, á Draugasetrinu, hjá Kajakferðum, á veitingahúsinu Við Fjöruborðið, Sundlaug Stokkseyrar, Heiðarblóma, hjá Sjöfn Har auk þess sem söfn og sýningar á staðnum verða opin venju fremur og listafólk tekur á móti gestum.

Á Laugardagskvöldinu verða síðan tónleikar “STOKK-ROKK” þar sem fjölmargar unglingahljómsveitir leika á nýja sviðinu á Stokkseyrarbryggju. Eftir það verður Hera með tónleika á Draugabarnum og Ingvar trúbador leikur í Tjaldinu Við Fjöruborðið.

Á sunnudeginum verður síðan hópreið hestamanna og eldsmiður að störfum við skeifugerð og hópakstur vélhjólamanna. Söguferð í rútu um Stokkseyrarhrepp hinn forna undir leiðsögn Bjarkars Snorrasonar á Tóftum og Harðar Sigurgrímssonar í Holti.

Nánari dagskrá síðar. Vænti þess að sjá ykkur

Ykkar einlægi og elskandi Biggi


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 23:33:51 / birgirm

Una cerveza por favor...

Helgin var ágæt, allavega fyrsta fríhelgin mín í langan tíma.
Á föstudaginn var ég að vinna til að ganga 11 en fór þá í bæinn á djamminn, fyrst á tebó og þá niðrí bæ. Allt var þetta ágætt en sjitturinntitturinn fannst manni maður vera orðinn gamall. Já, samt ekki nema á nítjánda ári. Þannig er mál með vexti að á þessu Sólbjarts-tebói var margt um manninn en meðalaldurinn var ekki hærri en 16! Hummm.... kannski að maður gefi tebóunum smá frí?

17. júní stendur svo alltaf fyrir sínu. Þó að maðurinn sem fæddist þann dag hafi verið fyllibytta og ræfill þá er alltaf viss stemning sem myndast og ósjálfrátt verður maður lítill aftur og syngur: Hæhójibbíjei og jibbíjei það er kominn 17. júní....
Seinnipartinn var stefnan tekin heim á ný og bauð ég nokkrum valinkunnum skemmtanafríkum í grillveislu. Þangað mættu: Ösp og Billi, Alli og Dúdda, Jón Ólafs, Örvar og Erla. Seinna um kvöldið birtust svo Valli, Gunni Valli, Raggi, Haffi og Guffi. Ég og Dúdda unnum svo Actionari með tilþrifum og æsingurinn í leiknum var orðinn svo mikill að það lá við slagsmálum. Haha... Svo var skundað á Pakkarann og dansinn stiginn að vanda. Takk fyrir kvöldið krakks!

Dagurinn í dag hefur svo verið ljúfur. Steik heima, pizza í kvöldmat og gott veður hefur gert þennan dag góðan. Ég, Alli og Dúdda fórum í langan bíltúr um Stokkseyri og skoðuðum hús og lóðir, ekki er laust við að maður hafi fengið smá fiðring í magann við tilhugsunina að bráðum komist maður á þann aldur að fara að koma sér upp húsnæði. Mín tilfinning er sú að Stokkseyri verði fyrir valinu á endanum, ég held að við munum öll, þ.e.a.s. núverandi ungir Stokkseyringar, enda hér á Eyrinni drekkandi rauðvín og spilandi kana í góðra vina hópi. Römm er sú taug og tilhugsunin er góð

En nú tekur við annasöm vika, ætla samt að redda mér smá fríi og skella mér til Eyja á fimmtudaginn og fram á föstudag að kíkja á búskapinn hjá Alla og Dúddu og í leiðinn sjá ÍBV rústa Skagamönnum. Sweet!

P.s. Svo fjölmennum við á Jónsmessu á Eyrarbakka á laugardaginn og ekkert rugl!

Kv. Biggi andskoti

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 01:02:49 / birgirm

Algjör bomba! Segi það og skrifa´ða B O B A! Boooommmmbbbbaaaaa....!

Var að koma af afmælistónleikum Bubba Mortens. Já segja má að ég sé í sveittari lagi og er það engin furða ef satt skal segja.

Byrjum á grundvallaratriðinu. Bubbi er frábær tónlistarmaður sem á allan þann heiður skilin sem honum hefur hlotnast undanfarin ár. Þau lög sem hann hefur gert ódauðleg með þeim hljómsveitum sem hann hefur spilað með eru óteljandi. Annað gildir um persónuleika Bubba, hann þoli ég ekki, en auðvitað kemur það málinu ekki við á neinn hátt.

 

Tónleikarnir voru alveg magnaðir og er ég ótrúlega feginn að hafa á síðustu stundu ákveðið að fara. 5000 manns fylltu höllina og enginn annar íslenskur popptónlistarmaður gæti gert það, ef frá er skilin hún Björk okkar.

Svo ég taki dæmi um það stuð sem var á staðnum vil ég benda á að okkar ágæti forseti, en samt dauðanum leiðinlegri, var ekki feiminn við að dilla höfðinu í takt við tónlistina. Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, bar konuna sína á háhest og slömmuðu þau bæði eins og þau ættu lífið að leysa.

 Segja má með réttu að Bubbi hafi aldrei verið í betra formi. Eitt vil ég þó segja að lokum: Takk fyrir frábæra skemmtun, ég hefði aldrei trúað því að tónleikar með Bubba gætu skilið svona mikið eftir sig. Snilld!

 En tími til að koma sér í sturtu áður en fleiri flugur andast hérna í kringum mig. 14 tíma vinnudagur bíður....

 Þesssi fallegi dagur....                                                                                               ble...                                                                                                                       p.s. plan fyrir helgina?

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 02:18:33 / birgirm

Enn eitt hræsnið, enn ein dómadags dellan...

Fokksjitt... Gat verið að ég væri heimskur?

 Allavega, þá kom ég heim á Eyrina á sunnudagsmorguninn og svaf til hádegis. Þá ákvað ég að skella mér aftur í bæinn í verslunarleiðangur (þar sem Alli bróðir er ekki sáttur með að hans föt eru ekki til taks þegar á þarf að halda), en kíkti fyrst á heimasíður verslanakeðjanna til að athuga með opnunartímanna. Kringlan hafði vit á að tilkynna að allar verslanir hennar væru lokaðar. Á Smaralind.is stóð hins vegar: Opið verður í Smáralind á Uppstigningardag frá 13.00 - 18.00. Veitingahús og Smárabíó er opið lengur.

 Flott hjá mér!

 Auðvitað tók ég því sem gefnu að herra uppstigningadagur væri í dag (sunnudag)og brunaði í bæinn! Ég meina, fokksjitt hver er munurinn á uppstigningardegi og hvítasunnudegi? Hver er munurinn á kúk og skít? Enginn! Afhverju í ***skotanum er frí hjá verslunarmönnum á hvítasunnudag og svo ég spyrji bara í hreinskilni, hvað þá í drullunni gerðist þennan dag sem réttlætir annan eins óskapnað? Og ekkert trúarsjitt hér.... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 12:20:36 / birgirm

Sódóma aaaaaaa Sódóma aaaaaaa

Komdu með mér til að kanna heiminn týnum appelsínur finnum keiminn,....

Djöfull langar mig á Sálarball! Hvað er langt síðan síðast, hummm.... hálft ár góðir lesendur og það er langur tími, a.m.k. ef við miðum við líftíma húsflugu.
Og látið mig vita ef þið heyrið af einu líku því þá fjölmennum við!

Og talandi um e-ð gott. Djöfull er tussugott veður og það sem er allrabesta við þetta unaðslega veður er hafgolan, svöl gola sem ber með sér ferskt sjávarloftið. Lyktin af þara, sjó, sandi og smá seltu berst að vitum manns og lengir lífið án efa um eins og góð 10 ár. Eins gott að á Tyrklandi hinu góða sé álíka ferskur vindur. Nýjustu fréttir herma þó að Kúrdar séu að sprengja allt í loft upp þarna niðrí rassgati.

En nóg um það. Ætla að skreppa í Reykjavík city og eyða peningum og kaupa mér Sálardisk í tilefni sumarkomunar.
Síja tonight eða?!

týnum döðlur tökum daginn snemm’ í nótt...

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 01:57:36 / birgirm

Hver er klár?

Segið mér hvaða drykkur inniheldur eftirfarandi

Innihald: Íslenskt vatn, malt, mais, humlar. Alkóhól 5,6% rúmmál

 

 



Sá sem getur þetta er sannkallaður alki:D

 

Svo langaði mig að þakka LÍN fyrir mig. Takk takk!


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 23:48:50 / birgirm

Atburðir helgarinnar

Jæja kæru vinir nú er þessi helgi liðin og ný vinnuvika bíður.
Á föstudaginn var mér boðið í útskrift hjá Hildi Edwald sem útskrifaðist frá MR fyrr um daginn.
Stefnan hafði verið sett á Reykjavík city um kvöldið og ætluðu allir að fara á djamminn en skynsemin tók völd hjá mér og gerðist ég þá keyrari (driver) fyrir hinar fyllibytturnar. Þegar niður í bæ var komið biðu okkar margar hvítar húfur og fékk það mann til þess að hugsa: Sjitt, eftir ár verð ég líka svona!
En ekki voru allir að fagna stúdentsprófum þetta kvöld og hitti ég Lenu, Gauja, Habbý og aðra káta á Ari í Ögri, þar voru vægast sagt fáir en Emý, sem vinnur þar þessar stundirnar sá um að halda fólkinu vakandi með góðum tilboðum á barnum.
Eftir að hafa keyrt Gaja, Lenu og Gunnar Örn heim að sofa úr sér, sýndi Þóra hin þrekna mikið sjónarspil um allan bæ og fer ég ekki meira í þá sálma heldur geymi góðar sögur til betri tíma. Þó má upplýsast að Jónsi í Svörtum fötum, Gunni nokkur af nesinu, æla á bílinn minn og athyglisverð pissuferð svo fátt eitt sé nefnt kemur mjög við sögu...

Klukkan var orðin 7 þegar ég loks renndi aftur á Eyrina og sólin hafði þegar sýnt sig. Kosningadagur var runninn upp og allir í fílings. Fyrripart dags skruppum ég og Hildur í Tryggvaskála þar sem frambjóðendur spjölluðu við kjósendur og boðið var upp á kaffi og með því. Þar skein leikgleðin úr andlitum manna og greinilegt hvað í vændum var, sigur sjálfstæðismanna í Árborg.

Eftir dýrindismáltíð var stefnan tekin á ný í bæinn þar sem Lena hafði planað “lítið” partý í tilefni dagsins. Þar hittumst við nokkur til að byrja með en það sem mér þótti verst var að enginn var tilbúinn að rífast við mig um pólitík fyrr en Auður og Gugga komu og vinkona Gauja sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. Takk fyrir það hugsandi fólk!

Glæsileg útkoma sjallana um nær allt land fékk mann til þess að fyllast gleði og ánægju. Fólkið í Árborg hafði m.a. sennt meirihlutanum þar skýr skilaboð um breytingar og störfum Framsóknar og Samfylkingar undanfarið kjörtímabil var hafnað. Hvernig getur lýðræðið verið að virka þegar flokkur með yfir 40% fylgi, tvöfaldar fylgi sitt á milli kosninga, tvöfaldar fulltrúa sína í bæjarstjórn, fellir meirihlutann með jafn afgerandi hætti, Samfylking tapar helming sinna bæjarfulltrúa og Framsókn einum, Hvernig getur lýðræðið verið að virka þegar bæjarbúar senda svo afgerandi skilaboð til meirihlutans og samt er Sjálfsæðisflokkurinn hunsaður þegar kemur að meirihlutaviðræðum? Svarið er sem fyrr óhugnanleg valdafíkn og einskær sameiginlegur órökstuddur vilji vinstriflokkanna að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum, sama hver vilji íbúa Árborgar er, sama þó þeir kalli eftir breytingum. Þetta er lýðræðið í sinni verst mynd!

En nóg þras. Um nóttina var stefnan tekin á bæinn þar sem við skemmtum okkur þar til nýr dagur var risinn og íslensk sumarnóttin skartaði sínu fegursta. Takk fyrir mig og hvernig væri að skella sér í útilegu á laugardaginn og elta sólina? Látið í ykkur heyra.

Kveðja Biggi

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 14:12:59 / birgirm

Aðeins minna en ekki neitt-ttien ikke ne annim snieða

SVO ER BARA AÐ KJÓSA RÉTT, OG RÉTT SKAL VERA RÉTT. EF ÞIÐ VITIÐ HVAÐ ÉG ER AÐ FARA.... X við upphafsstaf fígúru sem á gula rauða bílnum glaður fer....


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 14:16:43 / birgirm

...

UUUUUuuuuuuu... hvað get ég sagt?

 

 



  • Skólinn er búinn og sumarfríið byrjar með stormi. Vel gert!
  • Ég er byrjaður að vinna í sjoppunni á Eyrinni í hjáverkum.
  • Ég var á rúntinum til að verða þrjú í nótt, ég mætti tveimur bílum
  • Svaf til átta og keyrði Andra í skólann
  • Gat ekki sofnað aftur
  • Horfði á Nágranna
  • Horfði á Veggfóður
  • Horfði á Nágranna á Stöð 2 plús
  • Las Moggan
  • Fór í tölvuna
  • Fékk mér kex og kaffi
  • Bíð eftir því að sundlaugin opnar

 

 

UUUUUuuuuuuuuu... Þá er því komið til skila. Notið daginn!


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 13:34:52 / birgirm

Spreyta sig... koma svo, svona í tilefni dagsins...

Skiptið tölunni 10 í tvo jákvæða hluta þannig að summan af þriðja veldi annars og öðru veldi hins verði sem minnst.

Sá sem getur þetta fær veglegan vinning í boði fraktdeildar Atlantsskipa.

 

Atlantsskip, flytja vörur.

 

 

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 20:14:41 / birgirm

Ef ekki nú þá þá og ef ekki þá þá þá

Nu er jeg helt forbavset. Þar sem ég hef verið löglega afsakaður frá lærdómi í dag, vegna fermingar litla dýsins á heimilinu, ákvað ég eftir mikið samviskubitkast að tilkynna mínum nánustu að ég væri farinn að læra. Ég tek það fram að ég er ekki búinn að opna bók í dag og komst yfir kafla í gær.

Svar mömmu var eftirfarandi: Nei, fáðu þér meira að borða, þú ert nú alveg að keyra þig út á þessum lærdómi.Svar ömmu á Helgó var þetta: Þú verður, Biggi minn, að passa þig að læra ekki yfir þig.

 

Og hér er ég fyrir framan tölvuna og tek orðum þeirra eldri sem staf í bók, sem lög í lagasafni. Yndislegt súkkulaðihjúpað marsípanið bráðnar nú í munni mér og rjúkandi kaffibolli mér við hlið. Lífið er sjúklega magnað á stundum...

P.s. Nú er ég fyrst farinn að fíla þessa Silvíu Nótt. Þegar aðrir dýrkuðu hana hataði ég hana að sama skapi. Nú þegar öll Evrópa og heimavinnandi húsmæður í Vesturbænum hata hana, elska ég hana. En vesen með Eyþór Arnalds, ég bíð fregna.......................En hvað segiði náttúrufræði 2 fólk, engin stemmari fyrir eurovision partý á fimmtudaginn, já eða bara hittara? Pæling...

Hlakka til að hitta ykkur öll, því prófatörn þessari er nú senn lokið;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 19:23:53 / birgirm

Efnafræði, þú ert ekki vinur minn og ég er ekkert bitur kall

Djöfull er ég feginn að

 

þetta eru mínar síðustu

 

 klukkustundir í

 

efnafræði!

 

Bless og ég mun ekki sakna þín á nokkurn hátt!


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 22:25:50 / birgirm

Kosningar 2006. Hækkandi sól um allt!

Ný Gallup könnun sýnir aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins í höfuðborginni. Flokkurinn fengi hreinan meirihluta fulltrúa samkvæmt niðurstöðunni. Samfylking tapar fylgi frá síðustu könnun, Frjálslyndir bæta við sig, en aðrir flokkar standa í stað.

En góðar fréttir! Loksins virðast íbúar höfuðborgar Íslands, Reykjavíkur vera að taka við sér og átti sig á hvað dæmalaust valdabrölt og óskipulag getur haft í för með sér.
Lítum til seinustu 12 ára, til ársins 1994. Þetta ár buðu Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag, Framsóknarflokkurinn, óháðir og vinstrimenn sameiginlega undir merkjum R-listans! Íhaldið burt var sag tog glæstur sigur með Ingibjörgu Sólrúnu í fararbroddi var í höfn.
Loforð um að allir fengju leikskólapláss, að skuldir Reykjavíkurborgar myndu hverfa, bættur hagur barnafjölskyldna og aldraðra yrði tryggður, bættar samgöngur, meira íbúalýðræði og mannlegri stjórnarhættir yrðu viðhafðir innan veggja Ráðhússins var lofað.
Fyrir kosningarnar þar á eftir árið 1998 voru bæklingarnir svo endurútgefnir, ártali og dagsetningu var vissulega breytt (skárra væri það nú) og endurnýjaðar voru myndir af framtíðarleiðtoga og vonardís vinstrimanna á Íslandi Imbu Sollu og plaggið gefið út. Ekki höfðu R-listamenn nokkurn áhuga á að útskýra hvers vegna ekki hafði tekist að efna fyrri loforð um bætt lífskjör þegna sinna. Vissulega höfðu þessi sömu lífskjör breyst, en sú breyting var til hins verra. Á meðan ríkið, undir styrkri handleiðslu hægrimanna borgaði niður skuldir sínar til þess að styrkja lánsmöguleika Íslands erlendis þá byrjuðu vinstrimenn í borginni að safna gífurlegum skuldum. Bygging glæsihýsis undir starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur fór 73% fram úr kostnaðaráætlun (sennilega af því að Alfreð Þorsteins. krafðist þess að hafa útsýni yfir á Esjuna og yfir sundin blá úr skrifstofu sinni) Nýir skattar, s.s. hinn illræmdi holræsaskattur var settur á laggirnar (jú ef að borgarbúar vilja hafa skolplaggnir í borginni verða þeir að greiða sérstakan skatt. Annars urðu þeir bara tekið upp gamla náttgagnið) Útsvarið var keyrt í botn þ.e. 13% (Þetta þurfti ekki að koma neinum á óvart þar sem vinstrimenn hafa aldrei í sögunni lækkað skatta) og svo mætti lengi telja. R-listamenn treystu sem fyrr á vonarstjörnu þeirra, hennar útgeislun og sjarma, málefnin máttu einu skipta. Íhaldið mátti ekki komast að kjötkötlunum og því hélt samsull þessara litlu smáflokka áfram út næsta kjörtímabil eða allt til ársins 2002.
Vorið 2002. Ekki er miklu við það sem fyrr er sagt að bæta öðru en því að kosningaloforð þau sem gefin höfðu verið átta árum áður af samsullinu höfðu ekki enn komið til framkvæmda. En það var allt í lagi í augum hins almenna kjósanda. Því ný og fersk loforð voru gefin út. Þau snérust ekki að miklu leyti um málefni, aldeilis ekki, þau snérust um persónu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra (ári eftir var þessi borgarstjóratitill hins óháða (þ.e. hún var hið ópólitíska afl á listanum) borgarstjóra orðinn að forsætisráðherra efni Samfylkingarinnar (sem að sjálfsögðu er bráðfyndið þar sem engin fyrirmynd er til að slíkum skrípaleik í sögu Íslands)). Hún lofaði statt og stöðugt að sitja annað kjörtímabil og ljúka þeim verkefnum sem hún hafði lofað árið 1994. Og þessu trúði sótsvartur almúginn! En nú er Imbasolla óbreyttur þingmaður og stjarna hennar féll jafnskjótt og hún reis 10 árum áður. En R-listinn hélt áfram. Allt fyrir völdin, íhaldið skal ekki komast að og málefnin voru löngu gleymd. Seinni hluti þessa kjörtímabils hefur snúist um innanhúsdeilur, deilur um hver skyldi næsti borgarstjóri. Fyrst kom Þórólfur Árnason (hrökklaðist frá völdum eftir eitt ár eftir að upp komst að þegar hann var markaðsfulltrúi Esso hafði hann tekið þátt í samráði olíufélaganna og m.a. selt Reykjavíkurborg olíuverð langt umfram það sem rétt var). R-listinn var enn við það að springa. Alfreð fékk að verða forseti borgarstjórnar og Árni VG fékk einnig stöðuhækkun svo samsullið hélt áfram og við tók Steinunn Valdís óskarsdóttir. Ekki tókst hinum nýja borgarstjóra betur til en svo, að nokkrum mánuðum síðar sprakk listinn og er ekki lengur til en klárar þó kjörtímabilið í sínum frumpörtum (sem heita reyndar Samfylkingin, Vinstri grænir, Framsókn og óháðir akkúrat þessa stundina).
Öllum er ljóst að undanfarin 12 ár hafa málefnin ekki skipað heiðursess af hálfu R-listans. Persónuleg valdafíkn hefur verið drifskaftið og hrossakaup á milli þessara mörgu smáflokka eiga sér stað á hverjum degi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta hefur ekki farið fram hjá einum einasta manni sem fylgst hefur með gangi mála.

En nú er bjart yfir, sól hækkar á lofti sem samsvarar einu hænuskrefi á dag og kosningar til sveitastjórna eru eftir 17 daga. Ekki er seinna vænna en að gefa valdþreyttu fólki með sömu stefnuskrá og fyrir 12 árum frí. Gefum þeim sem hafa málefnin að leiðarljósi og hafa sýnt það og sannað, ekki einungis í sveitastjórnarmálum heldur einnig í landsmálapólitíkinni tækifæri. Látum kjörna fulltrúa vinna fyrir okkur, ekki fyrir sig sjálfa til tilbreytingar.

Og það góða er að sólin hækkar líka á lofti í Árborg, allt stefnir í hreinan meirihluta sjálfstæðismanna. Óráðsía þeirra sem nú stjórna í þessu unga sveitarfélagi er svipuð þeirri sem lýst er hér á undan. Gerum það sem er réttast og látum ekki gömul og margnota kosningaloforð villa okkur sýn þegar við kjósum til framtíðar.

» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3